Hagnaður Já minnkar milli ára

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagnaður Já hf. dróst saman um 79 milljónir króna milli ára og nam 232 milljónum samanborið við 311 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur drógust saman um 90 milljónir króna en rekstrargjöld drógust jafnframt saman um 55 milljónir króna.

Rekstrartekjur félagsins námu 1.025 milljónum króna og rekstrargjöld voru 750 milljónir króna. Hjá félaginu störfuðu alls 80 starfsmenn í árslok 2014. 

„Afkoma félagsins er góð og í samræmi við áætlanir félagsins. Við erum bjartsýn á framtíðina og vinnum markvisst að því að efla þjónustu og lausnir Já“, er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Já, í tilkynningu.

Já hf. var stofnað fyrir tíu árum síðan utan um rekstur upplýsingaþjónustu.  Undanfarin ár hefur félagið lagt mikla áherslu á þróun stafrænna upplýsingalausna til að mæta þörfum notenda. Já hf. hefur auk þess fjárfest í öðrum upplýsingafélögum til þess að útvíkka starfsemina og fjölga tekjustoðum félagsins, en fyrr á þessu ári keypti félagið allt hlutafé í Gallup.

Já hf. er í meirihlutaeigu Auðar I, fagfjárfestasjóðs sem er í eigu margra stærstu lífeyrissjóða landsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK