„Boltinn er hjá Netflix“

Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu.
Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

„Við höfum sagt að við verðum nánast með útbreiðslu um allan heim í lok ársins 2016 en við höfum ekki gefið neitt upp varðandi Ísland,“ segir upplýsingafulltrúi Netflix aðspurður hvenær von sé á opnun efnisveitunnar hér á landi.

Þrátt fyrir að Netflix vilji greinilega ekki gefa upp nákvæmar dagsetningar hafa forsvarsmenn fyrirtækisins verið að gera samninga við rétthafa myndefnis á Íslandi. Áður hefur verið greint frá samningum fyrirtækisins við Samfilm en Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu, staðfestir í samtali við mbl að Sena hafi einnig gengið til samninga við Netflix. Hann segir efnisvalið sem Netflix hefur tryggt sér vera nokkuð breitt. 

Ágætur samningur

Aðspurður um stærð samningsins segir Björn hann vera ágætan, en ekkert óvenjulega stóran.

Björn segir að boltinn sé núna hjá Netflix. „Nú vitum við ekki meira í bili,“ segir hann. „Við vitum ekki hvenær þeir ætla að ríða á vaðið.“

„Þeir virðast bara vera að undirbúa þetta og ganga frá samningum,“ segir Björn.

Netflix opnaði fyrir nokkru sérstaka undirsíðu tengda Íslandi þar sem lítið kemur þó fram. Þar geta áhugasamir beðið um að fá tilkynningu í tölvupósti þegar Netflix verður opnað.

Í síðustu viku sendi Netflix frá sér tilkynningu þar sem greint var frá áformum um mikla útbreiðslu í Asíu á fyrri hluta næsta árs og í júní var greint frá opnun á Ítalíu, Spáni og Portúgal í október nk. Virðist því sem Netflix tilkynni um opnun með a.m.k. nokkurra mánaða fyrirvara.

Kjósa frekar krókaleiðir til Bandaríkjanna

Þrátt fyrir að Netflix hafi ekki beint verið í boði fyrir íslenska neytendum benda kannanir til þess að um 20 þúsund íslensk heimili séu með áskrift að bandarísku þjónustunni í gegnum krókaleiðir. Óvíst er hvort þessir viðskiptavinir ákveði frekar að nýta sér íslensku útgáfuna.

Bent hefur verið á að mikill munur sé á milli úr­vals­ins sem þar er í boði og yrði á ís­lensk­um veit­um. Þegar Netflix hóf t.d. að bjóða þjón­ust­una á Norður­lönd­un­um voru margir sem töldu úrvalið síðra en það sem var í boði í Bandaríkjunum og fetuðu því áfram krókaleiðir að banda­rísku út­gáf­unni. Sem dæmu um þetta hafa víða verið birtar leiðbein­ing­ar á net­inu þar sem til dæm­is Norðmönnum eða Bret­um er beint framhjá þeirra eig­in út­gáfu - í þá banda­rísku.

Samkvæmt nýjustu þróun er þá einnig ljóst að Netflix mun ekki taka íslenska markaðinn í einum bita þar sem SkjárEinn hefur t.d. tilkynnt að allt púður verði lagt í gagnvirka efn­isveituþjón­ustu frá og með næstu mánaðamót­um. Fyrr á ár­inu byrjaði Voda­fo­ne þá einnig að bjóða upp á Play og Cirk­uz þjón­ustu og á síðasta ári keyptu 365 miðlar fjar­skipta­fyr­ir­tækið Tal og hóf sölu á fjar­skiptaþjón­ustu sam­hliða afþrey­ing­unni.

Frétt mbl.is: Barátta efnisveitanna framundan

Frétt mbl.is: Netflix í viðræðum við Senu

Úrvalið yrði sérstakt á Íslandi.
Úrvalið yrði sérstakt á Íslandi. Skjáskot af Netflix
Netflix tilkynnir vanalega opnun með nokkurra mánaða fyrirvara.
Netflix tilkynnir vanalega opnun með nokkurra mánaða fyrirvara. AFP
SkjárEinn ætlar að leggja allt púður í gagnvirka efnisveituþjónustu frá …
SkjárEinn ætlar að leggja allt púður í gagnvirka efnisveituþjónustu frá og með næstu mánaðarmótum.. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK