Gjaldþrotum fækkar um 14%

Hótel rísa eins og gorkúlur um allt land
Hótel rísa eins og gorkúlur um allt land mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá september 2014 til ágúst 2015, hafa dregist saman um 14% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 728 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í framleiðslu hefur fækkað mest, eða um 32% á síðustu 12 mánuðum.

Mest aukning í gisti- og veitingarekstri

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá september 2014 til ágúst 2015, hefur fjölgað um 15% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.259 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í rekstri gististaða og veitingarekstri, 43% á síðustu 12 mánuðum, segir í frétt Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK