2,5 milljarðar í Jennifer Aniston auglýsingu

Jennifer Aniston vill fara í sturtu í vélinni.
Jennifer Aniston vill fara í sturtu í vélinni. Skjáskot úr auglýsingu Emirates

Flugfélagið Emirates hefur fengið leikkonuna Jennifer Aniston til liðs við sig í nýrri auglýsingaherferð og samkvæmt tilkynningu frá félaginu virðast forsvarsmenn hafa fulla trú á afurðinni þar sem tuttugu milljónum Bandaríkjadala, eða sem jafngildir 2,5 milljörðum íslenskra króna, var varið í að tryggja auglýsingapláss víðs vegar um heim. 

Í auglýsingunni lendir leikkonan í óskemmtilegri lífsreynslu þar sem áhöfnin í flugvél frá ónefndu félagi gerir óspart grín af henni þegar hún hyggst fara í sturtu eða kíkja á barinn. Fljótlega kemur þó í ljós að einungis hafi verið um vondan draum að ræða.

Í tilkynningu er haft eftir Boutros Boutros, framkvæmdastjóra hjá félaginu, að auglýsingin hafi verið skrifuð með Aniston í huga þar sem ætlunin var að sýna fram á lúxusinn hjá Emirates með gamansömum hætti.

Fyrir skömmu síðan hleypti einn helsti samkeppnisaðili Emirates, félagið Ethiad Airrways, auglýsingaherferð með leikkonunni Nicole Kidman af stokkunum. Hlutdeild félagana á Bandaríkjamarkaði hefur aukist að undanförnu við ófögnuð bandarískra samkeppnisaðila.

Hér má sjá auglýsinguna í heild sinni:

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK