Huld tímabundið forstjóri Tryggingastofnunar

Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins við Laugaveg.
Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar ríkisins við Laugaveg. Morgunblaðið/Eggert

Huld Magnúsdóttur verður tímabundið forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. október næstkomandi. Hún mun gegna stöðunni í níu mánuði í fjarveru Sigríðar Lillýjar Baldursdóttur sem hefur hlotið námsleyfi til sama tíma.

Huld hefur gegnt embætti forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga frá árinu 2009. Áður starfaði hún hjá Össuri hf. í 15 ár. Hún hefur langa stjórnunarreynslu og starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og dreifingarsviðs Össurar í Bandaríkjunum. Huld er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst,  BA-próf í alþjóðasamskiptum frá University of Sussex í Englandi og hefur lokið diplómanámi á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Ráðherra hefur sett Þorbjörgu Gunnarsdóttur til að gegna embætti forstjóra þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar í Huldar stað frá 15. október til níu mánuða. Þorbjörg hefur starfað hjá þjónustu- og þekkingarmiðstöð frá árinu 2008 og síðustu ár sem skrifstofustjóri en áður starfaði hún um nokkurra ára skeið hjá Skeljungi á fjármálasviði fyrirtækisins. Þorbjörg er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í fjölmiðlafræði og almannatengslum frá Virginia Commonwealth University.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK