„Of langt í land“

Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Höfuðstöðvar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).

Félag atvinnurekenda (FA) segir að íslensk stjórnvöld séu langt frá því að ná tölulegum markmiðum Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar frá því í mars 2014. Félagið segir íslensk fyrirtæki eiga mikið undir því að hér gildi sömu reglur og á stærsta markaðssvæði þeirra, Evrópumarkaðnum. Það sé ekki nóg að setja sér góða stefnu.

Fram kemur á vef FA, að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafi í morgun nýtt yfirlit yfir frammistöðu EFTA-ríkjanna við innleiðingu EES-löggjafar, en greint var frá því á mbl.is.

„Eins og áður stendur Ísland sig verst allra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins í þeim efnum. Innleiðingarhallinn (hlutfall reglna sem ekki hafa verið leiddar í innlendan rétt) hefur þó lækkað úr 2,8% í nóvember á síðasta ári í 2,1% í maí síðastliðnum. 

Íslensk stjórnvöld hafa þannig tekið sig á, en eru þó enn býsna langt frá því að ná öðru af tveimur tölulegum markmiðum Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar frá því í mars 2014. Það var að fyrri hluta árs 2015 yrði innleiðingarhallinn kominn undir 1%. Í skýrslu ESA er frammistaða Íslands sögð áhyggjuefni og íslensk stjórnvöld hvött til að taka sig á,“ segir FA.

Fimm mál til meðferðar hjá ESA

Þá segir, að hitt tölulega markmiðið hafi verið að á sama tíma yrði ekkert dómsmál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna misbrests á innleiðingu EES-reglna. Samkvæmt upplýsingum sem Félag atvinnurekenda aflaði sér hjá ESA í dag eru nú fimm mál til meðferðar hjá dómstólnum vegna þess að Ísland hefur ekki innleitt EES-gerðir í íslenskan landsrétt.

„Þessi þróun sýnir að það þokast í áttina, en þó er alltof langt í land að markmiðum Evrópustefnu stjórnvalda sé náð,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, í tilkynningu.

„Íslensk fyrirtæki eiga mikið undir því að hér gildi sömu reglur og á stærsta markaðssvæði þeirra, Evrópumarkaðnum. Það er ekki nóg að setja sér góða stefnu, ríkið verður að úthluta fjármunum og mannskap til að fylgja henni eftir. Upp á það vantar ennþá og það er áhyggjuefni fyrir atvinnulífið.“

Málin sem enn eru fyrir EFTA-dómstólnum vegna skorts á innleiðingu EES-reglna. Nánar á vef FA.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK