Besti septembermánuður WOW

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW.

WOW air hefur aldrei flutt jafnmarga farþega í septembermánuði eins og nú í ár.

Félagið flutti um 74 þúsund farþega til og frá landinu í september eða um 70 prósent fleiri farþega en í september árið 2014. Sætanýting WOW air í september var 90 prósent og framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 101 prósent í september frá því á sama tíma í fyrra.

Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 545 þúsund farþega en það er 38 prósent aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

Í síðasta mánuði var greint frá því að farþegafjölgun hefði einnig verið mikil í ágúst, eða 45 prósent milli ára. Þá flugu 107 þúsund farþegar til og frá landinu með félaginu og höfðu þeir aldrei verið fleiri í einum mánuði.

Frétt mbl.is: Langbesta sumarið frá stofnun WOW

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK