Arion kaupir Vörð af BankNordik

„Tryggingar eru, og hafa verið, mikilvægur þáttur í okkar kjarnastarfsemi …
„Tryggingar eru, og hafa verið, mikilvægur þáttur í okkar kjarnastarfsemi og með kaupunum á Verði erum við að bæta skaðatryggingum við þjónustuframboð bankans,“ segir bankastjóri Arion banka. mbl.is/Eggert

Arion banki hefur keypt 51% í Verði tryggingum af BankNordik. Verðmæti félagsins er í viðskiptunum í heild sinni metið á 37.300.000 evrur. Forstjóri Arion banka segir mikilvægt að geta boðið viðskiptavinum bankans alhliða fjármálaþjónustu.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki viðkomandi yfirvalda og er gert ráð fyrir að salan á 51% verði fullfrágengin innan fárra mánaða.

Fram kemur í tilkynningu, að eigandi Varðar trygginga, færeyski bankinn BankNordik, hafi markað sér þá stefnu að takmarka umsvif sín utan Færeyja við bankastarfsemi. Í tengslum við þá stefnumörkun hafi verið greint frá því að hlutabréf bankans í Verði yrðu seld.

Þá segir, að á síðustu vikum hafi BankNordik átt í viðræðum við Arion banka um kaup hins síðarnefnda á Verði.  Viðræðum sé nú lokið en fyrr í dag hafi þessir aðilar fengið frá skilyrtum kaupsamningi sín á milli.

„Arion banki kaupir nú 51% hlut í Verði en þar sem hömlur eru á viðskiptum með eftirstandandi hluti hafa aðilar ákveðið að gefa út kaup- og sölurétt á útistandandi hlutum sem heimila Arion banka að festa kaup á hlutunum þegar hömlunum hefur verið lyft, eigi síðar en á árinu 2017.

Verðmæti félagsins er í viðskiptunum í heild sinni metið á 37.300.000 evrur,“ segir í tilkynningu.

Einnig kemur fram, að Arion banki hafi hug á að efla enn frekar vöxt og þróun Varðar á íslenskum tryggingamarkaði, bæði hvað varði viðskipti við einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. „Engar verulegar breytingar eru fyrirsjáanlegar á daglegum rekstri og breytt eignarhald ætti ekki að hafa áhrif á viðskiptavini félagsins,“ segir í tilkynningu.

„Vörður hefur verið hluti af samstæðu BankNordik síðan 2009 og á því tímabili hefur félagið aukið markaðshlutdeild sína verulega og bætt arðsemi. Við erum að selja mun sterkara félag en við keyptum árið 2009 og ég er handviss um að Arion banki muni halda áfram að styðja við þessa jákvæðu þróun,” segir Árni Ellefsen, forstjóri BankNordik, í tilkynningu.

„Það er okkur mikilvægt að geta boðið viðskiptavinum okkar alhliða fjármálaþjónustu. Það gerum við gegnum Arion banka sem og dótturfélög bankans. Samspil banka- og tryggingaþjónustu er vel þekkt víða um heim og ekki síst á Norðurlöndum. Tryggingar eru, og hafa verið, mikilvægur  þáttur í okkar kjarnastarfsemi og með kaupunum á Verði erum við að bæta skaðatryggingum við þjónustuframboð bankans. Vörður er öflugt og vaxandi fyrirtæki með sterkt vörumerki sem við höfum hug á að efla enn frekar í framtíðinni” segir Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK