Eins og „hlutabréf á sterum“

Seðlabanki Íslands hefur umsjón með skuldabréfaútgáfu.
Seðlabanki Íslands hefur umsjón með skuldabréfaútgáfu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Gengi langtíma ríkisbréfa hefur hækkað líkt og „hlutabréf á sterum“ eða um 4,3 prósent sem jafngildir um 66 prósent hækkun á ársgrunni. Í gær hækkaði gengi lengstu ríkisbréfanna um  1,5 prósent. Á þetta bendir fjármála- og hagfræðiráðgjöf Capacent og segir óhætt að segja að skuldir ríkissjóðs séu eftirsóttar nú um stundir

Bent er á að stýrivextir Seðlabankans myndi vaxtaviðmið sem aðrir vextir eigi að fylgja en að þeir hafi hins vegar hækkað um hálft prósentustig á sama tíma og vextir á markaði hafi lækkað um 1,3 prósentustig. „Seðlabankinn virðist hafa misst stjórn á vaxtaskipinu tímabundið í það minnsta, enda illviðráðanlegt líkt og trampólín í stormi,“ segir Capacent.

„Að skortselja skammtíma vexti og taka stöðu í langtíma vöxtum er sígilt og klikkar sjaldan,“ segir Capacent. Talið er að erlendir fjárfestar sem hafa setið fastir í skammtíma ríkisbréfum vegna gjaldeyrishafta losi sig úr stöðum samfara afnámi gjaldeyrishafta. 

„Fjárfestar geta svo fjárfest í langtíma óverðtryggðum ríkisbréfum eða langtíma verðtryggðum skuldabréfum eftir smekk. Það ræðst af því hvort fjárfestar telji að verðbólga fari vaxandi eða haldist lág næstu mánuði og að áfram verði eftirspurn eftir langtíma ríkisbréfum,“ segir Capacent.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK