Framleiðslufyrirtæki leikarans Leonardo DiCaprio hyggst framleiða kvikmynd um Volkswagen-hneykslið en myndin verður byggð á bók um sama efni eftir blaðamanninn Jack Ewing. Bókin er ekki komin út en Ewing er blaðamaður hjá New York Times.
Í samtali við CNN Money segir Ewing að fyrirtækið, Appian Way, hafi þegar tryggt sér kvikmyndaréttinn. Umboðsmaður hans sagði að bókin muni einblína á „meira, betra, hraðar“ andrúmsloftið innan fyrirtækisins sem varð kveikjan að einu „stærsta svindli fyrirtækjasögunnar.“
Bókin verður tilbúin í lok næsta árs en talið er að DiCaprio muni þá strax hefjast handa við kvikmyndaframleiðsluna.