Eimskip fær kínverska skipið endurgreitt

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eimskip hefur fengið endurgreitt fyrir skipið sem félagið hætti í sumar við að kaupa vegna tafa á afhendingu þess. Endurgreiðslan var gerð á grundvelli bankaábyrgðar og nemur 14,2 milljónum evra, eða sem jafngildir rúmum tveimur milljörðum íslenskra króna. 

Eimskip hafði þegar eignfært 12,1 milljón evra vegna smíði skipsins og mismunurinn á endurgreiðslunni og eignfærslunni nemur því 2,1 milljón evra, sem færist sem rekstrartekjur. Litið er á fjárhæðina sem söluhagnað og tjónabætur sem fært er meðal rekstrartekna.

Endurgreiðslan hefur jákvæð áhrif á handbært fé félagsins og rekstrarafkomu að því er segir í tilkynningu. Afkomuspá Eimskips fyrir árið 2015 hefur þar af leiðandi verið hækkuð og er áætluð EBITDA ársins nú 43 til 47 milljónir evra í stað 41 til 45 milljóna evra eins og félagið hafði gefið út í lok ágúst.

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir mjög jákvætt að ferlinu sé lokið og að endurgreiðslan hafi skilað sér. Hann segir endurgreiðsluferlið hafa gengið vel þar sem vandað var til allrar samningagerðar vegna smíði skipsins. „Í kjölfar þessarar niðurstöðu munum við halda áfram að skoða fjárfestingar á notuðum skipum sambærilegum Lagarfossi sem reynst hefur vel í rekstri félagsins.“

Skipið sem hætt var við að kaupa var seinna skipið af tveim­ur sem Eim­skip pantaði árið 2011. Fyrra skipið, Lag­ar­foss, var af­hent fé­lag­inu í júní á síðasta ári.

Frétt mbl.is: Eimskip hættir við skip frá Kína

Frétt mbl.is: Eimskip skoðar kaup á notuðu skipi

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK