Fjárhagsáætlun OR samþykkt

Orkuveitan
Orkuveitan mbl.is/Styrmir Kári

Stjórn Orkuveitunnar hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir samstæðu OR fyrir árið 2016 og fimm ára áætlun fyrir árin 2017 til og með 2021. Áætlunin er nú til umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg sem hluti af áætlun samstæðu borgarinnar.

Í tilkynningu segir að festa í rekstri OR og dótturfélaga muni skila góðri afkomu og traustari fjárhag á næstu árum þrátt fyrir talsverðar fjárfestingar. Helstu dótturfélögin eru Veitur ohf, Orka náttúrunnar ohf (ON) og Gagnaveita Reykjavíkur ehf (GR).

Fjárfestingar OR samstæðunnar hafa aukist smátt og smátt frá árinu 2013. Á árinu 2016 lýkur uppbyggingu nýrra fráveitna á Vesturlandi og á árunum eftir það taka við hefðbundnari endurnýjunar- og nýfjárfestingar í veitukerfum. Sú ákvörðun var tekin síðla árs 2014 að OR eignist aftur mæla fyrir rafmagn og heitt og kalt vatn hjá viðskiptavinum á þjónustusvæði sínu. Mælarnir eru um 150.000 talsins.

Hjá ON eru helstu fjárfestingar tengdar Hellisheiðarvirkjun. Þar er unnið að því að viðhalda gufuöflun til rekstursins með tengingu við háhitasvæðið við Hverahlíð og með viðhaldsborunum. Jafnframt tengjast fjárfestingar ON umhverfisverkefnum á borð við að draga úr útblæstri brennisteinsvetnis og frágangi eftir framkvæmdaskeið síðasta áratugar.

Á árinu 2015 lýkur GR við útbreiðslu ljósleiðaranets fyrirtækisins til heimila í Reykjavík en í tilkynningu segir að sú áratugarreynsla sem er komin á ljósleiðaranetið hafi aukið mjög eftirspurn eftir þessum öflugustu gagnatengingum sem heimilum standa til boða. Fjöldi sveitarfélaga hafi óskað eftir samstarfi við GR og sér þess merki í fjárfestingaáætlunum fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK