Björgólfur: Duttlungar fyrir dóm

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/Ásdís

Björgólfur Thor Björgólfsson segir þráhyggju Vilhjálms Bjarnasonar eiga sér lítil takmörk. „Með hana að vopni sér hann rangfærslur og svik þar sem sérfróðir rannsakendur sjá ekkert aðfinnsluvert. Það er illt að dómskerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan málatilbúnað.“

Þetta segir Björgólfur í nýrri bloggfærslu á vefsíðu sinni. Hann segir störfum hlaðið dómskerfi Íslands nú þurfa að bæta á sig duttlungum Vilhjálms. „Mál sem hann og málsóknarfélag hafa höfðað gegn mér verður væntanlega þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.“

Líkt og mbl greindi frá í morgun hafa yfir 200 manns skráð sig í fyrrnefnt málsóknarfélag.

Björgólfur segir málefni sín og bankans hafa verið rannsökuð í þaula af þar til bærum yfirvöldum og að ekki hafi verið talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra. „Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bankann og hann því skaðlaus af viðskiptum við mig,“ segir hann.

„Slitastjórn bankans hefur staðfest að hann eigi engar kröfur á mig. Misfærslum í skýrslu rannsóknarnefndar hef ég svarað ítarlega enda hef ég ekkert saknæmt unnið,“ segir Björgólfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK