Hefja beint flug til Prag

Vél Czech Airlines
Vél Czech Airlines

Prag hefur lengi verið ein vinsælasta ferðamannaborg Evrópu en framboð á flugi frá Íslandi hefur ekki verið mikið þar sem ferðalangar hafa oftast þurft að millilenda á leiðinni í óreglulegu leiguflugi. Úr þessu verður bráðum bætt þar sem Íslandi verður bætt við leiðarkerfi Czech Airlines, stærsta flugfélags Tékklands á næsta ári.

Túristi greinir frá því að jómfrúarferðin verði farin sextánda júní nk.

Í boði verða tvær ferðir í viku fram í miðjan september og munu þotur Czech Airlines taka á loft frá Keflavíkurflugvelli skömmu eftir miðnætti aðfaranótt mánudags og föstudags. Farþegar lenda því í Prag í morgunsárið.

Daniel Šabík, talsmaður Czech Airlines, segir í samtali við Túrista að sala á ferðum hefjist líklega í þessari viku. Fargjöldin liggja því ekki fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK