Fengu verðlaun fyrir Opal

Opal er rafknúið hvalaskoðunarskip í eigu Norðursiglingar.
Opal er rafknúið hvalaskoðunarskip í eigu Norðursiglingar. Ljósmynd/Norðursigling

Norðursigling hlaut silfurverðlaun World Responsible Tourism Awards 2015 á World Travel Market (WTM) í London 4. nóvember sl. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki er heiðrað með þessum hætti á sýningunni. 

Verðlaunin fékk Norðursigling fyrir Opal-verkefnið, en Opal er rafknúið hvalaskoðunarskip, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.   

„Seglskipið Opal er tæknivæddasta skipið sem notað er í hvalaskoðun á Íslandi en skipið er með nýjan og sérhannaðan skrúfubúnað sem hleður rafgeyma skipsins undir seglum. Rafgeymar Opal eru hlaðnir með umhverfisvænni orku í höfn en þegar siglt er undir seglum er hægt að breyta skurði skrúfublaðanna og hlaða rafmagni inn á geyma skipsins.

Hvalaskoðunin verður vegna þessa enn hljóðlátari, sem hefur jákvæð áhrif á upplifun gesta og hefur mun minni truflandi áhrif á hvalina sem skoðaðir eru. Búnaðurinn hefur vakið mikla athygli erlendis og hefur Norðursigling nú uppskorið verðlaun fyrir vikið,“ segir í tilkynningu. 

Á Ferðamálaþingi sem haldið var á Akureyri í október sl. hlaut Norðursigling Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2015. Dómnefnd horfði sérstaklega til Opal-verkefnisins sem og áherslu Norðursiglingar á verndun og viðhald gamalla eikarbáta. Síðast en ekki síst var Norðursigling valið fyrirtæki ársins af Markaðsstofu Norðurlands.  Þessi viðurkenning er veitt til fyrirtækis sem hefur skapað sér stöðu á markaði og unnið að stöðugri uppbyggingu og vöruþróun.

Í september sl. bættist nýr hluthafi, Eldey TLH hf., í hóp eigenda Norðursiglingar. Eldey fjárfestir í sterkum afþreyingarfyrirtækjum sem hafa uppbyggingu, vöruþróun og sjálfbærni að leiðarljósi.  Aðrir eigendur Norðursiglingar eru stofnendurnir, bræðurnir Hörður og Árni Sigurbjarnarsynir og Heimir Harðarson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK