Kaupir fyrirtæki fyrir 55 milljarða

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels. mbl.is/Árni Sæberg

Forsvarsmenn Marels hafa undirritað kaup á hollenska fyrirtækinu MPS meat processing system. Kaupverðið er 382 milljónir evra eða 55 milljarðar íslenskra króna. Það er nálægt því að vera sambærilegt við heildarvirði allra tryggingafélaganna í Kauphöll Íslands. Þá má einnig til viðmiðunar benda á að heildavirði Eimskips var við lokun markaða í gær um 51 milljarður króna.

Þetta eru stærstu kaup íslensks fyrirtækis á öðru fyrirtæki frá því fyrir hrun, að því er mbl.is kemst næst.

Í frétt á vef Marels segir að hluthafar MPS, þeirra á meðal stjórnendur MPS, munu nota hluta kaupverðsins í að fjárfesta í Marel. Samkvæmt samkomulagi munu þeir kaupa 10,8 milljón hluti í Marel á genginu 213 kr. á hlut og skuldbinda þeir sig til að eiga hlutina í 18 mánuði frá kaupunum hið minnsta.

Tryggja langtímafjármögnun

Þá kemur fram að samhliða yfirtökunni hefur Marel tryggt langtímafjármögnun til 5 ára fyrir félagið í heild. Fjármögnunin er tryggð af Rabobank og nemur nærri 670 milljónum evra og eru skilmálar og vaxtakjör í samræmi við núverandi markaðsaðstæður. „Fjármögnunin gefur Marel aukinn fjárhagslegan sveigjanleika og styður við vöxt og framgang félagsins,“ segir í fréttinni.

MPS er alþjóðlegur leiðtogi í framleiðslu á búnaði fyrir fyrsta stig kjötvinnslu. Kaupin styðja því við framboð Marel á búnaði fyrir öll stig kjötvinnslu sem leiðir til betri samkeppnisstöðu félagsins í kjötiðnaði á heimsvísu. Engin skörun er í vörulínu félaganna tveggja og þá passar alþjóðleg starfsemi félaganna vel saman sem skapar grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt og arðsemi, segir í frétt Marels. 

Marel styrkir stöðu sína

„Með kaupunum styrkir Marel stöðu sína sem leiðandi framleiðandi á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á kjúklingi, kjöti, og fiski. Kaupin eru að fullu í samræmi við áður tilkynnta stefnu Marel um frekari vöxt og aukna arðsemi félagsins til frambúðar,“ segir í fréttinni. Kaupin styðja við framboð Marel á heildarlausnum í kjötvinnslu og ýta einnig undir jafnari tekjuskiptingu, bæði á milli mismunandi iðnaða og markaðssvæða. Í sameinuðu félagi er áætlað að kjötiðnaður muni skila um það bil 30% af heildartekjum og EBITDA á ársgrundvelli.

„MPS passar vel við Marel og mun styrkja félagið,“ er haft eftir Árna Oddi Þórðarsyni forstjóra Marels, í fréttinni. „Við þekkjumst vel enda höfum við sett upp fjölmargar verksmiðjur fyrir viðskiptavini í kjötiðnaðinum um heim allan. Í þeim verkefnum hefur MPS komið með framúrskarandi þekkingu og lausnir fyrir fyrsta stig kjötvinnslunnar að borðinu á meðan við höfum komið með það sem þarf fyrir næstu skref í vinnsluferlinu og svo hugbúnaðinn sem bindur þetta allt saman. Saman erum við sterkari og í lykilstöðu við að veita kjötframleiðendum heildarlausnir.“

670 starfsmenn hjá MPS

MPS er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu og þróun búnaðar til frumvinnslu í kjöti. Undir forystu styrkra stjórnenda hefur félagið vaxið og hagnast vel á síðustu misserum. Áætlaðar árstekjur félagsins fyrir 2015 nema 150 milljónum evra og EBITDA fyrir sama tímabil verður nálægt 40 milljónum evra. Fyrirtækið er með um 670 starfsmenn og eru höfuðstöðvar þess  í Hollandi. Framleiðsla fer að mestu fram í Hollandi og Kína en að auki hefur félagið yfir að ráða alþjóðlegu neti sölu- og þjónustueininga sem sinna fjölbreyttum viðskiptahópi um allan heim.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Búast má við að öll formleg skilyrði samningsins verði uppfyllt á fyrsta ársfjórðungi 2016. David Wilson, framkvæmdastjóri kjötiðnaðar hjá Marel og Remko Rosman, forstjóri MPS munu hafa mikilvægu hlutverki að gegna í framtíð Marel.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK