6,25 milljónir farþega á næsta ári

Keflavíkurflugvöllur eftir framkvæmdir.
Keflavíkurflugvöllur eftir framkvæmdir. Mynd/Isavia

Um 28,4% fleiri farþegar munu fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári en þessu en það þýðir að heildarfjöldi verður um 6,25 milljónir á árinu 2016. Þetta kemur fram í nýrri farþegaspá ISAVIA sem kynnt var í morgun. Útlit er fyrir að alls fari um 4,9 milljóni farþegar um völlinn á þessu ári sem er aukning um 25,8% frá árinu 2014.

Flest flugfélög sem fyrir eru munu auka tíðni sína á næsta ári eða bæta við áfangastöðum. Auk þess hefja nokkur ný flugfélög flug á árinu 2016. Sumarið 2016 munu því 25 flugfélög fljúta til 80 áfangastað frá Keflavíkurflugvelli.

Í farþegaspánni er gert ráð fyrir um 10% fleiri íslenskum ferðamönnum en árið 2015. Gangi þessi spá eftir munu Íslendingar verða um 24,3% af heildarfjöldanum. Erlendum ferðamönnum hefur það sem af er þessu ári fjölgað um tæp 30% en í spánni fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir 22,2% fjölgun þeirra. Erlendir ferðamenn verða því samkvæmt spánni um 1.540 þúsund eða um 75,7% af farþegum Keflavíkurflugvallar á næsta ári. Til samanburðar var þetta hlutfall 64,4% árið 2012.

Skiptifarþegum sem millilenda á Keflavíkurflugvelli á leið sinni á milli Evrópu og Norður-Ameríku fjölgar hratt og er gert ráð fyrir að þeir verði um 35% allra farþega árið 2016. Árið 2015 lítur út fyrir að hlutfall skiptifarþega verði 30,7%.

Næsta sumar verður flugstöðvarbyggingin um 16% stærri en hún var í byrjun þess árs og verða auk þess opnuð þrjú ný flugvélastæði.

Farþegaspá Isavia er unnin út frá gögnum flugfélaga um sætaframboð og er áætluð er ákveðin sætanýting. Spáin er samtala komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega um flugvöllinn. Hún telur því erlenda og innlenda ferðamenn bæði við komu og brottför auk þeirra sem einungis stoppa á flugvellinum til þess að ferðast áfram til annars lands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK