Bitist um heilsu auðkýfings á tíræðis aldri

Sumner Redstone
Sumner Redstone Af vef Redstone

Fyrrverandi unnusta Sumner Redstone, milljarðamærings á tíræðisaldri, hefur höfðað mál þar sem hún fer fram á að fá forræði yfir ákvörðunum varðandi heilsufar hans.

Sumner Redstone, sem er 92 ára að aldri ræður yfir fjölmiðlafyrirtækjunum Viacom og CBS, er sjálfráða og ræður því sjálfur hvaða aðstoð hann fær.

Manuela Herzer, sem var rekin af heimili hans í síðasta mánuði, segir að Redstone sé lifandi afturganga sem er heltekinn af kynlífi og steikum. Hann geri sér enga grein fyrir því sem fari fram í kringum hann.

Haft er eftir henni í skjölum málsins að Redstone eigi erfitt með að stjórna líkama sínum auk fleiri atriða sem hún tiltekur. Hún segir að hann hafi áður verið öflugur og gefandi en nú sé hann ófær um að taka ákvarðanir varðandi heilsu sína.

Lögmaður Redstone segir að það sem Herzer sé að hugsa um sé að hagnast á honum fjárhagslega og hún vilji ná í hluta af eignum hans. Lögmaðurinn segir að skjólstæðingur sinn njóti frábærrar aðstoðar góðs vinar þegar kemur að heilsufari hans.

Forbes hefur metið eignir Redstone á um 5,5 milljarða Bandaríkjadala. 

Um mitt síðasta ár fór heilsufari Redstone að hraka, samkvæmt skjölum sem Herzer lagði fram við dómstól í Kaliforníu í gær. Þá var hann lagður inn á sjúkrahús vegna lungnabólgu og öndunarerfiðleika. Ástand hans versnaði eftir að sambandi hans og Sydney Holland, sem var unnusta hans í fimm ár, lauk í ágúst, segir Herzer en hún hefur búið á heimili hans og hugsað um hann en tveggja ára ástarsambandi þeirra lauk árið 2001.

Herzer segir að hún hafi hafnað bónorði Redstones árið 2000 en þau hafi alltaf haldið vinskap. 

 Málshöfðunin hefur vakið upp spurningar um áhrifa þessa á fjölmiðlafyrirtækjanna en Redstone og fjölskylda hans eiga meirihluta hlutafjár í CBS og Viacom. 

Hann hefur ekki viljað ræða framhaldið og í viðtali í fyrra neitaði hann að ræða hver tæki við af honum. „Ég mun ekki ræða arftakann,“ sagði hann í viðtali við Hollywood Reporter í fyrra. „Þú veist hvers vegna? Ég mun ekki deyja og því ætti ég að ræða um arftaka minn?“

Redstone, sem lítið sést á ferli fyrir utan veggja heimilisins í Beverly Hills, hefur ekki mætt á hluthafafundi undanfarið og ekki heldur tekið þátt í fundum með greiningardeildum.

Dóttir hans, Shari, á 20% hlut í National Amusements -- einkahlutafélagi sem stýrir hlut Redstone í CBS og Viacom.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK