Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness í skaðabótamáli sem Toyota á Íslandi höfðaði á hendur Deloitte, en Toyota taldi Deloitte hafa valdið fyrirtækinu tjóni vegna ráðgjafar og var krafist 31,7 milljóna í skaðabætur. Var Toyota aftur á móti dæmt til að greiða 2 milljónir í málskostnað, en áður hafði sú upphæð numið 1,5 milljónum í héraði.
Toyota taldi að Deloitte hefði valdið fyrirtækinu tjóni við ráðgjöf á svokölluðum öfugum samruna eða skuldsettri yfirtöku. Toyota byggði á svonefndri sérfræðiábyrgð, en í henni felst að sakarreglunni er beitt með strangari hætti en almennt gerist. Toyota hélt því fram að Deloitte hefði veitt sérfræðiaðstoð við val á aðferð við samruna félaganna Bergeyjar ehf. og P. Samúelssonar hf. og skattskila hvað varðar frádráttarbærni vaxtagjalda í kjölfarið.
Deloitte mótmælti þessu og sagði að forsvarsmenn félaganna hefðu staðið að því að sameina félögin. Ágreiningslaust er í málinu að Deloitte gerði skattframtöl fyrir Toyota fyrir árið 2006 og að það hafi falið í sér að vaxtagjöld vegna lántöku við samrunann hafi verið gjaldfærð á móti tekjum. Í dómi Hæstaréttar segir hins vegar að skattframtalið hafi verið reist á ársreiknngi sem unninn var af Toyota og var á ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra félagsins. Staðfesti dómurinn því niðurstöðu héraðsdóms og sýknaði Deloitte í málinu.
Félagið Bergey og móðurfélag þess, Smáey ehf., voru í eigu útgerðarmannsins Magnúsar Kristinssonar, en þau eru nú bæði gjaldþrota.