Hreyfill er ráðandi á leigubílamarkaði

mbl.is/Jim Smart

Rúmlega 72% allra þeirra sem leyfi hafa til leigubifreiðaaksturs á höfuðborgarsvæðinu og í Keflavík starfa undir merkjum Hreyfils Bæjarleiða.

Af þeim 513 leyfum sem út eru gefin á svæðinu eru 372 tengd fyrirtækinu. Umsvifamesti keppinauturinn hefur aðeins 60 leyfum til að dreifa, en það er Bifreiðastöð Reykjavíkur.

Hreyfill er samlagsfélag og átti rúmar 315 milljónir í handbæru fé um síðustu áramót. Hagnaður þess 2014 nam 77,5 milljónum, að því er fram kemur í umfjöllun um fyrirtækið ´´i ViðskiptaMogganum í dag

.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK