Lakari vöruskiptajöfnuður í ár

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna …
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 50,9 milljarða króna. mbl.is/Sigurður Bogi

Vöruskiptajöfnuðurinn á fyrstu tíu mánuðum ársins var 16,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma í fyrra. 

Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 527,0 milljarða króna en inn fyrir 547,7 milljarða króna fob. Hallinn á vöruskiptum við útlönd nam því 20,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 3,9 milljarða á gengi hvors árs.

Hagstofa Íslands greinir frá þessu.

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 50,9 milljarða króna fob. Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 4,0 milljarða króna. Í október 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 11,4 milljarða króna á gengi hvors árs.

Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 35,9 milljörðum eða 7,3% hærra, gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli.

Sjávarafurðir voru 42% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Á móti dróst útflutningur á heilfrystum fiski saman.

Fyrstu tíu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 52,7 milljörðum eða 10,7% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK