Kolbeinn framkvæmdastjóri Athygli

Kolbeinn Marteinsson
Kolbeinn Marteinsson

Kolbeinn Marteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins Athygli. Hann hefur störf í janúar. Undanfarin tvö ár hefur Kolbeinn starfað sem markaðs- og kynningarstjóri Menntavísindasviðs Háskóla Íslands auk þess sem hann hefur sinnt stundakennslu við HÍ.

Kolbeinn var pólitískur aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur í iðnaðarráðuneytinu og síðar fjármála- og efnahagsráðuneytinu 2011 til 2013. Þar áður vann hann um sjö ára skeið við markaðs- og kynningarráðgjöf hjá Skaparanum markaðsstofu.

Kolbeinn lauk MSc gráðu í almannatengslum frá háskólanum í Stirling í Skotlandi árið 2004, BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2002 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 1994. Hann er kvæntur Hörpu Katrínu Gísladóttur sálfræðingi og eiga þau þrjú börn.

Athygli ehf. var stofnað árið 1989 og er í dag stærsta almannatengslafyrirtæki landsins. Starfsmenn fyrirtæksins eru 10 og fyrirtækið er með skrifstofur í Reykjavík og á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK