Norðursigling tilnefnd til verðlauna

Myndin er af umhverfisvænu skonnortunni Ópal á siglingu við Grænlandsstrendur …
Myndin er af umhverfisvænu skonnortunni Ópal á siglingu við Grænlandsstrendur nú í sumar. Mynd/Norðursigling

Umhverfisvæna hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling á Húsavík hefur verið tilnefnt til stærstu umhverfis- og viðskiptaverðlauna Evrópu, GreenTec Awards, í flokki ferðamála.

Netkosning er nú hafin um hver þeirra tíu aðila, sem tilnefndir eru í hverjum flokki, lendir í einu af efstu þremur sætunum en dómnefnd velur síðar sigurvegarann úr þeim hópi. Verðlaunin eru veitt í sextán flokkum og er Norðursigling tilnefnd í flokknum „Ferðalög“ (e.Travel Category).

Norðursigling hefur sent frá sér tilkynningu þar sem Íslendingar eru beðnir um að leggja fyrirtækinu lið og taka þátt í netkosningunni. 

„Þetta er mikill heiður fyrir okkur og viðurkenning á þeirri umhverfisvænu vegferð sem við höfum markað okkur.“

Norðursigling er fyrsta hvalaskoðunarfyrirtækið í heiminum sem býður upp á hvalaskoðunarsiglingar án þess að jarðefnaeldsneyti sé notað en fyrirtækið hefur, í samstarfi við fleiri aðila, þróað umhverfisvænan rafbúnað sem knýr skonnortuna Opal.

„Þetta er svolítið eins og að vera tilnefndur til Óskarsverðlauna og að sama skapi vekur þetta athygli á Íslandi sem umhverfisvænum áfangastað,“ segir Guðbjartur Ellert.

Norðursigling hlaut nýverið silfurverðlaun World Responsible Tourism Awards 2015 á World Travel Market (WTM) í London sem er ein stærsta ferðasýning í heiminum.

Norðursigling hefur einnig hlotið verðlaun og viðurkenningar hérlendis en fyrirtækið hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu í annað sinn nú í ár og var valið fyrirtæki ársins af ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi í haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK