Iðnmark: Þarf að virka í báðar áttir

Sigurjón Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Iðnmarks.
Sigurjón Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Iðnmarks. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Iðnamark segir alveg ljóst að snakktolla þurfi að skoða betur og kanna vel að innflutningsgjöld, og þá bæði tollar og kílógjöld, virki í báðar átti til að gæta hagsmuna allra. Þá helst þeirra tuttugu starfsmanna sem hafa framfæri sitt af því að framleiða snakk hjá þessum fyrirtækjum.

Líkt og fram hefur komið hefur meiri­hluti efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar Alþing­is dregið til baka til­lögu sína um að af­nema 59 pró­sent toll á kart­öflusnakki.

Frétt mbl.is: Þingmenn „guggna“ í snakkmáli

Í tilkynningu frá Iðnmark segir að fyrirtækið hafi á undanförnum árum fengið fyrirspurnir frá erlendum verslunarkeðjum og sérstaklega vegna framleiðslu á svokölluðu private label, þ.e sérpakkað snakk undir merkjum verslunarkeðju.

Samningar við norska keðju hafi verið komnir langt þegar í ljós kom að innflutningsgjöld á þeirra vöru hafi verið 585 krónur á hvert kíló. Eftir útreikninga var því hætt við allt saman 

„Ef á að breyta gjöldum á vörum þarf að skoða allan pakkann en ekki taka út eitt tollnúmer af mörgum í þessum vöruflokki,“ segir Iðnamark.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK