Ásakanir Landsvirkjunar út í hött

Verksmiðja Norðuráls á Grundartanga.
Verksmiðja Norðuráls á Grundartanga. mbl.is/Árni Sæberg

Norðurál segir ummæli forstjóra Landsvirkjunar í gær gagnvart fyrirtækinu vera út í hött og að framkoman hafi verið óvænt og mikil vonbrigði. Norðurál sendi í dag frá sér tilkynningu þess efnis, en í gær sagði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar að Norðurál nýtti sér kjaradeilu í samningaviðræðum við Landsvirkjun. Samningur Norðuráls rennur út árið 2019 og þarf að endurnýja hann á næstunni svo hann verði ekki opinn.

Yfirlýsing Norðuráls:

„Norðurál vísar á bug ásökunum forstjóra Landsvirkjunar í garð stjórnenda félagsins í allmörgum fjölmiðlum í gær. Af máli hans má draga þá ályktun að nær öll gagnrýni sem beinist að Landsvirkjun í opinberri umræðu, í málum af ýmsum toga, sé á ábyrgð Norðuráls.  Jafnframt er því haldið fram að Norðurál stýri ákveðnum verkalýðsfélögum.  Eins og allir sjá þá eru þessar fullyrðingar út í hött.

Viðræður um samningsbundna framlengingu orkusamnings milli fyrirtækjanna hafa farið fram af kurteisi og virðingu og góður gangur verið í þeim nýlega. Það er því óvænt og mikil vonbrigði að Landsvirkjun skuli koma fram með þessum hætti eftir nærri 20 ára farsælt samstarf fyrirtækjanna.

Norðurál mun áfram vinna af heilindum að samkomulagi við Landsvirkjun og vonar að Landsvirkjun geri hið sama.“

RAGNAR Guðmundsson forstjóri Norðuráls.
RAGNAR Guðmundsson forstjóri Norðuráls.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK