Bjarni: Lokin á leiðinlegum kafla

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er sáttur í dag.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er sáttur í dag. Eggert Jóhannesson

„Já, heldur betur,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, aðspurður hvort lokauppgjör Icesave-kröfunnar veki hjá honum gleði. „Þar með lýkur löngum og á köflum leiðinlegum kafla í uppgjöri við fall bankanna,“ segir hann.

„Það hafa verið margir áfangar á þessari leið og þetta er sýnist mér endastöðin,“ segir Bjarni.

Líkt og mbl greindi frá fyrr í dag hefur Seðlabank­inn veitt slita­búi gamla Lands­bank­ans und­anþágu frá gjald­eyr­is­höft­um.

Í kjöl­farið voru all­ar eft­ir­stæðar for­gangs­kröf­ur gerðar upp. Stærstan hluta þeirra má rekja til inni­stæðna sem Lands­banki Íslands safnaði í úti­bú­um sín­um í Amster­dam ann­ars veg­ar og London hins veg­ar und­ir vörumerk­inu Ices­a­ve.

Frétt mbl.is: Icesave greitt að fullu

Nú hafa dómstólar og kröfuhafar samþykkt nauðasamninga slitabúa LBI, Kaupþings og Glitnis Seðlabankinn á hins vegar ennþá eftir að veita þeim tveimur síðarnefndu undanþágu til þess að hægt sé að hefja útgreiðslur til kröfuhafa.

Bjarni segist mjög ánægður með niðurstöðuna. „Það sýndi sig að það þurfti inngrip stjórnvalda á síðasta ári,“ segir Bjarni og vísar til þess að slitabúunum voru settir afarkostir í sumar þegar leiðirnar tvær við uppgjör voru kynntar, þ.e. skattur ef nauðasamningar yrðu ekki kláraðir fyrir áramót. Sá frestur var þó reyndar síðar framlengdur til 15. mars.

„Við höfum undirbúið þetta vel og það þurfti að setja slitabúunum afarkosti ef þeir ætluðu ekki að ljúka nauðasamningsgerðinni,“ segir Bjarni.

„Það var rétt mat og nú er niðurstaða fengin,“ segir hann. „Öll fjármálafyrirtækin fóru leið nauðasamninga og stöðugleikaframlags og það hefur gerst á þeim tíma sem við vonuðumst til.“

Lokastöðinni í Icesave-deilunni hefur verið náð.
Lokastöðinni í Icesave-deilunni hefur verið náð. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK