Hefja viðræður um sölu á St. Jósefsspítala

St. Jósefsspítali í Hafnarfirði.
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Fjármálaráðuneytið er reiðubúið að hefja viðræður við Hafnafjarðarbæ um kaup á St. Jósefsspítala. Óviðunandi er að húsnæðið standi autt um lengri tíma og frekari dráttur leiðir til aukins kostnaðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsti á dögunum yfir áhuga sínum á spítalanum og óskaði eftir formlegum samningaviðræðum. 

St. Jósefsspítali er í 85 prósent eigu ríkisins og 15 próesnt eigu Hafnarfjarðarbæjar. Starfsemi var hætt á spítalanum árið 2011 og hefur húsnæðið verið til sölu um nokkurn tíma. 

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Hafnarfjarðarbær hafi fram að þessu ekki lýst yfir áhuga á slíkum viðræðum.

Eignirnar voru síðast auglýstar til sölu um mitt árið 2014 í samstarfi við sveitarfélagið.

Vegna skilyrða um heilbrigðistengda starfsemi í söluauglýsingu bárust örfá tilboð sem voru langt frá fyrirliggjandi verðmati og var þeim öllum því hafnað.

Hafnarfjarðarbær hefur hins vegar um nokkurt skeið ekki fallist á að eignirnar yrðu auglýstar aftur til sölu með almennum hætti.

Mikill áhugi á almennum markaði

Samkvæmt ráðuneytinu hafa fjölmargar fyrirspurnir borist í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um væntanlega sölu og er því talið að mikill áhugi sé fyrir húsnæðinu á almenna markaðnum.

Þá segir að nokkur áhugaverð tilboð hafi borist í eignirnar þótt þær hafi ekki verið í formlegu söluferli í nokkurn tíma.

„Ljóst virðist að vilji er fyrir því að hefja aftur starfsemi í umræddum fasteignum í þágu nærsamfélagsins. Það eru sameiginlegir hagsmunir ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar að koma eignunum sem fyrst í notkun enda óviðunandi að húsnæðið standi autt um lengri tíma,“ segir ráðuneytið.

„Frekari dráttur málsins leiðir til aukins kostnaðar, einkum fyrir ríkið sem hefur borið allan rekstrarkostnað húsnæðisins frá því að starfsemi lagðist af í eignunum, og seinkar því að eignirnar verði gerðar upp og nýttar að nýju.“

Þá segir að ráðuneytið fagni breyttri afstöðu Hafnarfjarðarbæjar og að það sé reiðubúið að hefja viðræður við sveitarfélagið við fyrsta tækifæri.

„Ljóst er að allar slíkar viðræður munu þurfa að byggja á sannvirði eignanna eins og almennt gildir um ráðstöfun eigna ríkisins,“ segir ráðuneytið að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK