Skipulagsbreytingar hjá Plain Vanilla

„Ég tel að sameiningin, ef af yrði, væri mjög jákvæð, …
„Ég tel að sameiningin, ef af yrði, væri mjög jákvæð, bæði fyrir framtíðarþróun Plain Vanilla en einnig fyrir þá mörgu fjárfesta sem lagt hafa okkur til fé í þessa uppbyggingu,“ segir Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla.

Plain Vanilla endurskipuleggur nú starfsemi sína hér á landi í kjölfar kaupa bandaríska leikjarisans Glu Mobile á stórum hlut í fyrirtækinu. Stefnt er að sameiningu fyrirtækjanna tveggja á næstu 15 mánuðum. Stöðugildum fækkar um 14 við breytingarnar.

Fram kemur í tilkynningu, að starfsmenn fyrirtækisins hér á landi hafi verið á bilinu 70-80. Meginþróun leiksins verði áfram hér á landi.

Þá segir að Glu og Plain Vanilla ætli í sameiningu að einblína á þróun QuizUp spurningaþáttarins, en frumsýning hans verði í Bandaríkjunum og Bretlandi næsta haust og talið er að spilurum leiksins muni enn fjölga í kjölfarið.

Þá er til umræðu hjá NBC að þátturinn verði á dagskrá beint á eftir „Sunday Night Football“, einu vinsælasta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum með allt að 40 milljón áhorfendur.

Plain Vanilla segir að fyrstu viðbrögð spilara QuizUp við auglýsingum innan leiksins hafai verið jákvæð.

Gert ráð fyrir hagnaði af árinu í heild

Tilkynningin er svohljóðandi í heild:

„Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla stefnir að því að tekjur félagsins verði umfram útgjöld innan sex mánaða og gera áætlanir fyrirtækisins ráð fyrir hagnaði af árinu í heild sinni. Þessu markmiði verður náð með tvennum hætti - annars vegar með því að afla meiri tekna í samvinnu við bandaríska tölvuleikjaframleiðandann Glu Mobile Inc. og hins vegar með samrekstri á ákveðnum sviðum með skila mun samlegðaráhrifum. Stöðugildum fækkar um 14 við þetta en þau hafa verið í kringum 80 að undanförnu. Stöðugildin eru á nokkrum ólíkum sviðum fyrirtækisins en Plain Vanilla hyggst einbeita sér að leikjaþróun og eigin tekjusköpun með auglýsingum o.fl. leiðum. Auknar beinar tekjur, auk samrekstursins, munu auðvelda Plain Vanilla að skila hagnaði fyrr. 

Hingað til hefur áhersla fyrirtækisins verið á að fjölga notendum óháð tekjum og var tekin meðvituð ákvörðun um að forðast beinar auglýsingar innan leiksins. Þeirri stefnu hefur nú verið breytt og áhersla er lögð á að fyrirtækið skili hagnaði í aðdraganda væntanlegrar sameiningar Plain Vanilla við Glu Mobile.

Nýverið var tilkynnt að Glu Mobile, sem skráð er í kauphöllina í New York, hefði fjárfest í Plain Vanilla fyrir tæpan einn milljarð króna og einnig öðlast kauprétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á föstu verði sem gildir í 15 mánuði. Í kjölfar þessara fregna hækkaði hlutabréfaverð í Glu Mobile um 6%.

Glu og Plain Vanilla ætla að einblína m.a. á þróun QuizUp sjónvarpsþáttarins en stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, ætlar að framleiða 10 þátta seríu sem byggir á QuizUp. Til umræðu er hjá NBC að þátturinn verði á dagskrá beint á eftir „Sunday Night Football“ sem er eitt vinsælasta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum í dag. Útsendingar frá leikjum í NFL ruðningsdeildinni  njóta mikilla vinsælda og þátturinn dregur allt að 40 milljón áhorfendur að skjánum í viku hverri. Það myndi því hjálpa áhorfi á QuizUp spurningaþáttinn að koma beint í kjölfarið í dagskránni. Breski fjölmiðlarisinn ITV hefur einnig keypt réttinn að QuizUp spurningaþættinum. Búist er við því að fjöldi fólks muni sækja QuizUp appið eftir að þættirnir fara í loftið.“

Staða fyrirtækisins styrkt til lengri tíma litið

„Glu Mobile býr yfir mikilli þekkingu á öflun tekna af vinsælum netleikjum. Fyrirtækið framleiðir fjölmarga slíka, þ.á.m. þekktan leik sem byggir á lífi raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian. Við höfum nú þegar byrjað að prófa að birta auglýsingar gagnvart smærri hópi QuizUp notenda og viðbrögðin hafa verið jákvæð sem gefur okkur tilefni til að ætla að það takist að Plain Vanilla skili hagnaði í ár. Þessi er stefnubreyting er hluti af samstarfi okkar við Glu Mobile og ef allt gengur vel munu fyrirtækin tvö hugsanlega sameinast. Ég tel að sameiningin, ef af yrði, væri mjög jákvæð, bæði fyrir framtíðarþróun Plain Vanilla en einnig fyrir þá mörgu fjárfesta sem lagt hafa okkur til fé í þessa uppbyggingu. Það eru ríflega 4 milljarðar króna sem komið hafa frá fjárfestum frá stofnun fyrirtækisins og sem nýttir hafa verið til að ráða margt hæfasta tæknifólk á Íslandi. Þetta er öflugt fólk sem öðlast hefur mikla reynslu á skömmum tíma. Til lengri tíma litið styrkjum við hins vegar stöðu fyrirtækisins, og áframhaldandi veru þess hér á landi, með því að leggja áherslu á þau svið þar sem við stöndum Glu Mobile framar,“ segir Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, ennfremur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK