Skordýrasnakk í bandarískar búðir

Frumkvöðlarnir Stefán Atli Thoroddsen og Búi Bjarmar Aðalsteinsson.
Frumkvöðlarnir Stefán Atli Thoroddsen og Búi Bjarmar Aðalsteinsson. Ljósmynd/Arion banki

Eigendur Crowbar Protein, sem framleiðir skordýrasnakkið Jungle Bar, eru búnir að skrifa undir samning við dreifingaraðila í Bandaríkjunum. Ekki er þó ennþá búið að leysa úr málum fyrirtækisins á Íslandi en Jungle Bar var tekið úr búðarhillum eftir að hafa verið í sölu í skamman tíma.

Líkt og mbl greindi frá á dögum var ástæðan evr­ópsk reglu­gerð um nýfæði sem öðlaðist ný­lega gildi á Íslandi. 

Frétt mbl.is: Skordýrasnakkið tekið úr hillum

Málið er nú til skoðunar hjá Matvælastofnun og er þá m.a. verið að horfa til þess hvernig sambærilegum málum er háttað í öðrum Evrópulöndum, sem lúta sömu reglum en hafa þó rýmkað þær, þannig að markaðssetning á matvælum sem unnin eru úr skordýrum er heimil, líkt og í Bretlandi, Hollandi og Belgíu.

Stefán Atli Thorodd­sen, einn eig­enda Crowb­ar Protein, telur að neysla á skordýrafæði komi til með að aukast í framtíðinni. Hann segir leiðinlegt að koma að lokuðum dyrum á Íslandi en bætir við að tækifærin bíði þeirra erlendis. „Við einbeitum okkur að erlendum mörkuðum þar til eitthvað breytist á Íslandi,“ segir hann.

Annað upplag úr framleiðslu

Stefán segir nýja dreifingaraðilann sérhæfa sig í að dreifa matvörum í heilsubúðir. „Þetta er mjög flott fyrirtæki sem hentar nákvæmlega því sem við erum að gera núna,“ segir hann. Fyrirtækið sér um dreifingu í Oregon, Washington og Illinois fylkjum í Bandaríkjunum.

Þá var annað upplag af skordýrasnakkinu framleitt á dögunum, alls tuttugu þúsund eintök. Í fyrsta kastinu voru einnig tuttugu þúsund eintök.

Jungle Bar hefur fengið mikla umfjöllun í erlendum miðlum og má þar m.a. nefna viðtöl í Newsweek, Wired og BBC

Athyglinni hefur fylgt aukin sala á heimasíðu Jungle Bar og segir Stefán að pantanirnar komi víðs vegar að þrátt fyrir að flestar séu frá Bandaríkjunum.

Stefán stofnaði Crowbar Protein ásamt Búa Aðal­steins­syni í kjöl­far verk­efn­is­ins Startup Reykja­vík árið 2014. Fyrirtækið var fjármagnað í gegnum Kickstarter auk þess að hafa fengið styrk frá Tækniþróunarsjóði. Sala á skordýrasnakkinu hófst í desember sl. 

Krybburn­ar í Jungle bar eru ræktaðar af krybbu­bónda í Kan­ada sem hef­ur leyfi frá rík­inu til skor­dýra­fram­leiðslu til mann­eld­is. 

Skordýrasnakkið Jungle Bar.
Skordýrasnakkið Jungle Bar.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK