Hagar skila viðskiptavinum 245 milljónum

Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Finnur Árnason, forstjóri Haga. Eggert Jóhannesson

Hagar ætla að skila 245 milljónum króna til viðskiptavina í gegnum lægra vöruverð. Útfærslan verður kynnt síðar.

Hinn 21. janúar síðastliðinn var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í máli Haga gegn íslenska ríkinu. Högum voru dæmdar 245 milljónir auk vaxta vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkissjóðs af innfluttum landbúnaðarvörum.  

Á heimsíðu Haga kemur fram að greiðsla vegna dómsins hafi enn ekki borist Högum. 

„Afstaða Haga til þess hvernig þessum fjármunum verður ráðstafað hefur ávallt legið fyrir. Þeim fjármunum verður skilað til viðskiptavina félagsins í gegnum lægra vöruverð,“ segja Hagar.

Þá segir að félagið þurfi að fara yfir álitamál um framkvæmdina, meðal annars með tilliti til samkeppnislaga.

Félagið mun kynna sérstaklega með hvaða hætti vöruverð verður lækkað til viðskiptavina Bónus og Hagkaups.

Málið varðaði innheimtu svo­kallaðs útboðsgjalds, sem er lagt á land­búnaðar­vör­ur. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að álagning gjaldsins væri ólög­mæt og stangaðist á við stjórn­ar­skrá.

Héraðsdóm­ur féllst hins veg­ar ekki end­ur­greiðslu­kröfu vegna gjalds­ins þar sem gögn lágu ekki fyr­ir um hvort gjaldið hefði skilað sér til baka til greiðanda í gegn­um verðlagn­ingu vör­unn­ar.

Hæstiréttur komst að annarri niðurstöðu og féllst á endurgreiðslukröfuna. Í dóminum kom fram að fyr­ir­tæk­in höfðu orðið fyr­ir tjóni vegna ólög­mætrar skatt­heimtu. Yrði eðli máls­ins sam­kvæmt að miða við að álagn­ing gjalds­ins hefði haft áhrif á rekst­ur fyr­ir­tækj­anna og að sönn­un­ar­byrði um annað hvíldi á rík­inu.

Frétt mbl.is: Ríkið end­ur­greiði hálf­an millj­arð

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK