Hyundai og Heinz með bestu auglýsingarnar

Auglýsing Hyundai með Kevin Hart í aðalhlutverki þótti best.
Auglýsing Hyundai með Kevin Hart í aðalhlutverki þótti best. Skjáskot af Youtube

Super Bowl snýst ekki aðeins um fótbolta og sýninguna í hálfleik heldur einnig um auglýsingarnar sem sýndar eru í beinu útsendingunni. Gærkvöldið var engin undantekning og greiddu fyrirtæki allt að fimm milljónir Bandaríkjadali eða jafnvirði 638 milljóna íslenskra króna fyrir 30 sekúndna auglýsingu.

Það er þó allt talið þess virði en á síðasta ári sáu 114 milljónir manna leikinn og auglýsingarnar sem fylgdu.

Þúsundir áhorfenda kusu um bestu auglýsingarnar á vef USA Today og eru þetta fimm bestu auglýsingarnar að þeirra mati:

Auglýsing bílaframleiðandans Hyundai fékk hæstu meðaleinkunnina meðal kjósenda USA Today eða 6,9. Í henni má sjá grínistann Kevin Hart í hlutverki föður stúlku sem fer á stefnumót með ungum dreng. Með nýjustu tækni í bílum Hyundai getur Hart elt parið unga og fylgst með stefnumótinu. 

Í öðru sæti varð auglýsing Heinz þar sem má sjá litla sæta hunda, klædda í pylsubúninga, hlaupa að risastórum sósuflöskum, sem mannfólk er klætt í. Sú auglýsing fékk 6,63 í meðaleinkunn. 

 Auglýsing Doritos hafnaði í þriðja sæti með 6,60 í meðaleinkunn. Þar má sjá ólétta konu í sónar og maðurinn með henni, borðandi Doritos. Hann bregður á leik með barninu sem virðist vera spennt fyrir því að fá að smakka Doritos þegar það kemur í heiminn. 

Doritos hafnaði einnig í fjórða sæti með auglýsinguna „Doritos Dogs“. Þar má sjá starfsmann verslunar glíma við nokkra hunda sem reyna ítrekað að komast inn í búðina til að kaupa sér Doritos. Hundarnir fengu 6,48 í meðaleinkunn. 

Í fimmta sæti var önnur auglýsing Hyundai þar sem Hollywoodstjarnan Ryan Reynolds er í aðalhlutverki. Snýst hún um að sýna öryggisstillingar Hyundai sem greinir m.a. gangandi vegfarendur, sé bílstjórinn annars hugar. Auglýsingin fékk 6,27 í meðaleinkunn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK