Beyoncé notar Airbnb

Gott útsýni er úr sundlauginni.
Gott útsýni er úr sundlauginni. Mynd Airbnb

Vinsældir Airbnb hafa aukist gífurlega á síðustu árum og sífellt fleiri velja að bóka gistingu í gegnum síðuna í stað þess að fara á hefðbundin hótel. Þetta virðist jafnt eiga við um frægar stórstjörnur og alla aðra.

Söngkonan Beyoncé vakti athygli í vikunni þegar hún birti mynd af sér á Facebook undir yfirskriftinni „It was a Super weekend“ eða „Þetta var ofurhelgi“ og merkti síðan Airbnb.

Beyoncé tróð upp á ofurskálinni á sunnudag og leigði hús í gegnum síðuna um helgina. Sérfræðingar hafa grafið upp húsið sem Beyoncé leigði en það er í Los Altos hæðunum í Kaliforníu og kostar nóttin 9.240 evrur, eða um 1,3 milljónir íslenskra króna. Hér er hægt að bóka húsið sem er með fimm svefnherbergjum og rúmar tíu gesti.

It was a Super weekend Airbnb

Posted by Beyoncé on Monday, February 8, 2016
Stofan er nokkuð rúmgóð.
Stofan er nokkuð rúmgóð. Mynd/Airbnb
Mynd/Airbnb
Nú geta allir sem eiga 1,3 milljónir fyrir nóttina leigt …
Nú geta allir sem eiga 1,3 milljónir fyrir nóttina leigt sama hús og Beyoncé. Mynd/Airbnb
Húsið er í Kaliforníu
Húsið er í Kaliforníu Mynd/Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK