Seðlabankinn tístir á morgun

Seðlabankinn er mættur á Twitter.
Seðlabankinn er mættur á Twitter. Skjáskot af Twitter

Á morgun gerist Seðlabanki Íslands nútímalegri þegar hann byrjar formlega að tísta. 

Er þá átt við sendingar á efni í gegnum samskiptamiðilinn Twitter. Það verður gert í tilefni af fyrstu vaxtaákvörðun á árinu og útgáfu á fyrsta hefti Peningamála á árinu.

Þeir sem tengjast tístsendingum Seðlabankans geta þannig fengið ábendingar um ákvarðanir um vexti, um sérstakt efni í ritum bankans og upplýsingar um fleira sem Seðlabankinn hefur með að gera.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að nú þegar hafi hópur fólks gerst áskrifandi tíst-sendingum bankans.

Þeir sem vilja tengjast tístsendingunum þurfa að vera skráðir með aðgang að Twitter og geta þar tengt sig við @sedlabanki_is eða við enska hlutann sem er @centralbank_is.

Eins og staðan er núna er Seðlabankinn með 124 fylgjendur.

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar verður birt á vef bankans og með fréttasendingum klukkan 8:55 á morgun og ritið Peningamál verður birt á vef bankans klukkan 9:00.

Klukkustund síðar, klukkan 10:00, hefst svo vefútsending þar sem nánar verður greint frá rökum að baki vaxtaákvörðunarinnar og efni Peningamála kynnt.

Þar munu Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabankans kynna ákvörðunina nánar og greina frá efni Peningamála. Þeir sitja báðir í peningastefnunefnd Seðlabankans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK