Iða Brá í stað Halldórs Bjarkar

Iða Brá Benediktsdóttir.
Iða Brá Benediktsdóttir.

Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Iða Brá tekur við starfinu af Halldóri Bjarkar Lúðvígssyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum.

Frétt mbl.is: Halldór Bjarkar hættir hjá Arion

Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Rotterdam Shcool of Management í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans. Hún hefur gegnt ýmsum störfum  hjá bankanum en starfaði lengi sem forstöðumaður í fjárstýringu bankans.

Undanfarin ár hefur Iða Brá gengt starfi forstöðumanns einkabankaþjónustu Arion banka en þar áður stýrði hún samskiptasviði bankans.

Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfestum og HB Granda hf.

Iða Brá er gift Einari Þór Guðjónssyni viðskiptafræðingi og saman eiga þau þrjú börn.

Halldór Bjarkar Lúðvígsson er hættur hjá Arion og Iða tekur …
Halldór Bjarkar Lúðvígsson er hættur hjá Arion og Iða tekur við starfinu,
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK