Í kjölfar útboðs á farmiðakaupum ríkisins verður innleitt nýtt verklag og munu öll farmiðakaup færast yfir frá ráðuneytunum sjálfum yfir í rekstrarfélag Stjórnarráðsins. Þar verður þjálfaður upp starfsmaður í bókun farseðla.
Sá mun vinna eftir samræmdu verklagi sem miðar að því að ná sem mestri hagkvæmni út úr þessum þætti starfseminnar. Í dag sér hvert ráðuneyti um sín farmiðainnkaup og er verkið þá á borði starfsmanna þar innhúss en pantanir eru gerðar á grundvelli ferðabeiðna sem eru háðar samþykki yfirmanna.
Þetta kemur fram í svari Fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Túrista.
Áformað er að útboðið fari fram síðar í mánuðinum en þetta verður í fyrsta skipti frá í ársbyrjun 2011 sem hið opinbera býður út kaup sín á flugsætum.
Þá skiluðu Icelandair og Iceland Express inn tilboðum og var samið við bæði félög.
Ári síðar komst kærunefnd útboðsmála að þeirri niðurstöðu að verulega miklu hefði munað á kjörum félaganna tveggja og að ekki hefði átt að taka tilboði Icelandair.
Iceland Express hætti hins vegar starfsemi nokkrum mánuðum eftir úrskurð kærunefndar.