ÁTVR fékk hæstu einkunn í ánægjuvoginni

Asgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, …
Asgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís og Margrét Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri sölu-og þjónustu NOVA. Mynd/Stjórnvísi

Í dag voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2015 kynntar og er þetta sautjánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 19 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 329 til 1178 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

ÁTVR fékk hæstu einkunn allra fyrirtækja með 73,8 stig, en Nova var í öðru sæti með 71,1 stig. Veitt er viðurkenning þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næst hæstu einkunnina.

Í ár var afhent viðurkenning í einum flokki; farsímamarkaði, þar sem Nova fékk viðurkenningu. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur til staðar á fyrirtæki með hæstu og næsthæstu einkunn voru bankar, tryggingafélög, raforkusölur og eldsneytisfélög. Þá var ekki marktækur munur á ÁTVR sem var með hæstu einkunnina á heildina litið og Nova sem var með næsthæstu einkunnina. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér fyrir neðan.

Niðurstöður í Ánægjuvoginni í ár og í fyrra.
Niðurstöður í Ánægjuvoginni í ár og í fyrra. Mynd/Stjórnvísi
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK