Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines mun á morgun fljúga fyrstu flugferð ársins til Íslands en með þessu eykur flugfélagið ferðatímabil sitt til landsins um þrjá mánuði. Mun flugfélagið því núna fljúga í sjö mánuði samfleytt til New York á þessu ári, en í lok maí bætist Minnapolis við sem nýr áfangastaður og verður flogið þangað til loka september. Samtals mun sætaframboð flugfélagsins með þessu aukast um 101% frá í fyrra.
Delta hóf að fljúga til Íslands árið 2011 og voru þá fimm ferðir í boði vikulega. Nú verða 15 ferðir í boði yfir sumartímann í hverri viku. Líkt og fyrri ár fljúga Boeing 757-200 þotur Delta milli Íslands og New York