EURAM ráðstefnan til Íslands

Umsóknin var unnin í samvinnu við Háskóla Íslands og Meet …
Umsóknin var unnin í samvinnu við Háskóla Íslands og Meet in Reykjavík, en jafnframt með stuðningsbréfi frá bæði borgarstjóra og forseta Íslands.. mbl.is/Ómar Óskarsson

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hefur unnið réttinn til þess að halda European Academy of Management (EURAM) ráðstefnuna á Íslandi árið 2018.

EURAM ráðstefnan er ein stærsta ráðstefna á sviði viðskiptafræða í Evrópu og stærsta ráðstefna sem haldin hefur verið á þessu sviði á Íslandi. Áætlað er að um 1.200 til 1.400 gestir sæki ráðstefnuna.

Í tilkynningu segir að EURAM sé þekkingarsamfélag háskóla í 49 löndum sem stofnað var árið 2001 og miðar að því að efla rannsóknir og þekkingarsköpun í viðskiptafræðum. Ráðstefna EURAM 2016 verður haldin í París, Frakklandi, undir yfirskriftinni: Manageble Cooperation.

Þá segir að undirbúningsnefnd EURAM 2018 telji það mikinn feng fyrir Háskóla Íslands að ná EURAM ráðstefnunni til Íslands. Rástefnan muni hjálpa til við að efla alþjóðlegt samstarf og rannsóknir í viðskiptafræðum við Háskóla Íslands og vekja áhuga erlendra fræðimanna á Íslandi.

Umsóknin var unnin í samvinnu við Háskóla Íslands og Meet in Reykjavík, en jafnframt með stuðningsbréfi frá bæði borgarstjóra og forseta Íslands.

Formaður undirbúningsnefndar EURAM 2018 er Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti og lector við Háskóla Íslands. Eyþór er jafnframt Meet in Reykjavík ambassador.

Frá fundi EURAM árið 2014 í Valencia á Spáni.
Frá fundi EURAM árið 2014 í Valencia á Spáni.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK