Tjaldað í tvo daga fyrir skópar

Um fjörtíu manns biðu í röð fyrir utan Húrra í …
Um fjörtíu manns biðu í röð fyrir utan Húrra í morgun. mbl.is/Styrmir Kári

Kanye West hefur verið umtalaður á síðustu dögum. Fyrst var það fyrir raus á Twitter en nú hefur hönnun hans fengið nokkra Íslendinga til þess að tjalda fyrir utan verslun á Hverfisgötu.

Verslunin Húrra við Hverfisgötu hóf klukkan 11 í morgun sölu á svokölluðum Yeezy Boost 350 Pirate Black skóm sem Kanye West hannaði fyrir Adidas. Skórnir koma í afar takmörkuðu upplagi um allan heim og er eftirspurnin mun meiri en framboðið.

Það má t.d. sjá af því að skóna má finna til sölu á eBay á uppspengdu verði. Skórnir kosta 34.990 krónur í Húrra en á uppboðssíðunni nemur verðið allt frá 800 til 2.100 Bandaríkjadölum, eða sem jafngildir 100 til 250 þúsund íslenskum krónum.

Alls var 21 par í boði en í kringum fjörtíu manns voru í röðinni. Ljóst er því að nokkrir fóru tómhentir heim þrátt fyrir biðina.

Sá sem lengst hafði beðið var mættur í röðina á miðvikudaginn og samkvæmt heimildum mbl ætlar hann að eiga skóna í stað þess að græða á þeim.

Hver viðskiptavinur mátti aðeins kaupa eitt par og ekki var í boði að máta skóna. 

Skórnir virðast vera ágætis fjárfesting.
Skórnir virðast vera ágætis fjárfesting. mbl.is/Styrmir Kári






mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK