Áfengisfrumvarp veikir innlenda framleiðslu

Mikil aukning hefur orðið í sölu á innlendum bjór á …
Mikil aukning hefur orðið í sölu á innlendum bjór á síðustu árum en hlutfall innlends bjórs í sölu hjá ÁTVR hefur aukist frá því að vera 56% á árinu 2001 í það að verða 71% á síðasta ári. mbl.is/Styrmir Kári

Ef heimilt verður að selja áfengan bjór í búðum eins og stefnt er að með nýju áfengisfrumvarpi, sem afgreitt hefur verið úr allsherjar- og menntamálanefnd, þá styrkir það erlend vörumerki frekar en þau innlendu að sögn Samtaka Iðnaðarins.

Að sögn samtakanna hafa erlendu vörumerkin forskot vegna heimildar til að auglýsa vörur sínar í fjölmiðlum sem berast til landsins. Innlendir bjórframleiðendur hafi ekki sömu möguleika til að kynna sínar vörur. Þetta gæti leitt til verulegs ójafnræðis og veikt þannig stöðu innlendra framleiðenda. 

Mikil söluaukning

Í tilkynningu frá SI er bent á að mikil aukning hafi orðið í sölu á innlendum bjór á síðustu árum en hlutfall innlends bjórs í sölu hjá ÁTVR hefur aukist frá því að vera 56% á árinu 2001 í það að verða 71% á síðasta ári. Fyrirtækjunum hér á landi sem framleiða bjór hefur fjölgað töluvert undanfarin ár og eru nú orðin 7 talsins. Þá hefur stöðugt bæst í fjölda innlendra bjórtegunda og eru tegundirnar nú orðnar hátt í 70 en voru innan við 10 fyrir 15 árum.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir samtökin vilja stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi framleiðenda enda sé það allra hagur að hér dafni blómlegur iðnaður.

„Við viljum að þeir fjölmörgu gestir sem heimsækja landið eigi þess kost að gæða sér á innlendri framleiðslu. Því er mikilvægt að hugað sé að því að innlendir framleiðendur áfengra drykkja hafi sömu möguleika og erlendir framleiðendur að koma vörum sínum á framfæri,“ er haft eftir Almari í tilkynningu.

Frelsi til kynningar verður að fylgja

„Þá má ekki gleyma því að innlend framleiðsla skilur eftir sig meiri virðisauka fyrir samfélagið en innflutningur gerir. Nú þegar frumvarpið hefur verið afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis viljum við beina því til þingmanna að hafa í huga hvaða afleiðingar frumvarpið gæti haft á innlenda framleiðslu ef innlendir framleiðendur geta ekki keppt á jafnræðisgrunni áfram,“ segir Almar.

„Ef um er að ræða vörur sem keppa á frjálsum markaði verður að fylgja því frelsi til að kynna vörurnar. Til að veikja ekki stöðu innlendra framleiðenda er því nauðsynlegt að greina betur áhrifin af þeim lagabreytingum sem felast í frumvarpinu. Við höfum bent allsherjar- og menntamálanefnd á þetta með skýrum hætti og þess vegna kemur það á óvart að málið sé afgreitt úr nefnd án þess að meiri greining fari fram,“ segir Almar. 

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK