Brynjar afléttir þagnarbindindi

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa aflétt „þagnarbindindinu“ og tjáir sig um málefni forsætisráðherra og eiginkonu hans eftir að hafa farið yfir staðreyndir og upplýsingar sem birtar voru á páskadag. Hann telur að málið hafi ekki mikil áhrif á forsætisráðherra þrátt fyrir að upplýsingarnar hefði mátt birta í þágu vandaðra stjórnarhátta.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Brynjars þar sem hann setur málið í samhengi við ýmislegt annað.

„Nú er það þannig að stjórnmálamenn þurfa að taka ákvarðanir sem geta haft áhrif á persónulega hagsmuni þeirra. Ágæt dæmi um það eru neyðarlögin þegar ákveðið var að innistæður fengju forgang umfram aðrar kröfur í föllnu bankanna. Enginn spurði þá um eignir stjórnmálamanna á innlánsreikningum,“ segir Brynjar.

„Enn betra dæmi er þegar síðasta ríkisstjórn ákvað í tengslum við auðlegðarskattinn að undanþiggja lífeyriseignir frá skattstofni. Þeir sem áttu sinn sparnað í öðru formi, t.d. hlutabréfum eða sparnaðarreikningum þurftu að greiða auðlegðarskatt af þeim eignum. Hverjir skyldu nú hafa átt meiri eignir í lífeyrissjóði en aðrir? Og þar að auki lífeyri með ríkisábyrgð. Jú, oddvitar vinstri stjórnarinnar. Þarna var verið að setja lög sem voru ívilnandi fyrir þetta fólk, öfugt við skerðingar á eignum þeirra sem áttu kröfur á föllnu bankanna, eins og eiginkona forsætisráðherra.“

Aldrei hugsaður sem tekjuöflun

Brynjar segir það vera útbreiddan misskilning að eiginkona forsætisráðherra hafi grætt þar sem samið var við kröfuhafana um stöðugleikaframlag í stað þess að skattur hafi verið lagður á.

„Stöðuleikaskatturinn var aldrei hugsaður sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Aldrei stóð til að innheimta meira af kröfuhöfunum en nauðsynlegt var til að efnahagslegur stöðuleiki væri tryggður við afnám hafta samkvæmt mati Seðlabankans. Hefði skatturinn átt að ná eitthvað umfram það hefði hann verið í andstöðu við stjórnarskrána,“ segir Brynjar.

Brynjar segir að upplýsingar um lífeyriseignir Jóhönnu og Steingríms hefðu …
Brynjar segir að upplýsingar um lífeyriseignir Jóhönnu og Steingríms hefðu mátt liggja fyrir þegar lög um auðlegðaskatt voru sett. mbl.is/Ómar Óskarsson

Upplýsingarnar hefðu mátt liggja fyrir

Með hliðsjón af fyrirliggjandi upplýsingum segist Brynjar ekki getað séð að þetta mál hafi mikil áhrif á stöðu forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar þótt umræðan sé erfið.

„Ríkisstjórnin vann þrekvirki við að tryggja efnahagslegan stöðugleika, sem að mestu leyti var á kostnað kröfuhafa bankanna og þar með eiginkonu forsætisráðherra,“ segir hann.

„Hins vegar hefði ég kosið að þessar upplýsingar hefði legið fyrir, svona í þágu vandaðri stjórnarhátta, sem og upplýsingar um lífeyriseignir Jóhönnu og Steingríms þegar auðlegðarskatturinn var lagður á,“ segir Brynjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK