Venus og Víkingur víkja fyrir Fast 8

Uppsjávarskipin Venus NS og Víkingur AK eru komin til Reykjavíkur eftir að hafa legið í höfninni á Akranesi frá því að loðnuvertíð lauk.

Í frétt á vef HB Granda segir að ástæðan fyrir flutningi skipanna séu tökur á bandarísku hasarmyndinni The fast and the furious 8 en Akraneshöfn og Sementsverksmiðjan á Akranesi verða vettvangur viðburða í tökum á myndinni næstu dagana.

„Áður en haft var samband við HB Granda vegna skipanna í höfninni var True North búið að setja sig í samband við bæjarstjórann á Akranesi vegna töku myndarinnar í byggingu Sementsverksmiðjunnar. Þá verða upptökur einnig á hafnarsvæðinu. Þær hefjast 14. apríl nk. og eiga að taka tvo daga. Síðan eru aðrir tveir dagar ætlaðir fyrir tökur í Hvalfirði,“ segir í fréttinni. Er þar vitnað í skipaeftirlitsmann HB Granda sem segir að Venus og Víkingur séu einfaldlega of stór skip fyrir leikmyndina á hafnarsvæðinu og hafi því þurft að víkja.

„Fyrst var rætt um að Lundey NS, sem liggur í höfninni, færi einnig en sú ósk var síðan dregin til baka. Bjarni Ólafsson AK er einnig í höfninni en hann virðist ekki vera fyrir kvikmyndagerðarmönnunum, segir Karl Sigurjónsson.“ 

Alls munu um 300 manns koma að upptöku Fast and the furious 8 á Akranesi og má því gera ráð fyrir að tökurnar setji svip sinn á bæinn svo um muni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK