Þorbjörg frumvöðull ársins

Dr. Þorbjörg Jensdóttir var valin frumkvöðull ársins.
Dr. Þorbjörg Jensdóttir var valin frumkvöðull ársins.

Dr. Þorbjörg Jensdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri IceMedico var valin frumkvöðull ársins 2016 á verðlaunaafhendingu sem Stjórnvísi stóð fyrir þriðjudaginn 12. apríl á Grand Hótel.

Þorbjörg fékk verðlaunin vegna HApmunnsogsmolanna, sem eru fyrir fólk sem þjáist af munnþurrki.

Molarnir eru afrakstur rannsókna Þorbjargar í doktorsnámi í Danmörku þar sem hún lagði áherslu á glerungseyðingu tanna. Þessar rannsóknirnar leiddu af sér fyrrnefnda mola sem örva munnvatnsframleiðslu tuttugufalt án þess að eyða glerungi tannanna.

Síðasta haust flutti Þorbjörg aftur til Íslands þar sem hún hefur byggt upp fyrirtækið IceMedico.

Í tilkynningu segir að styrkur HAp+ felist fyrst og fremst í því að langvarandi notkun molanna skemmir ekki tennur. Um 400 lyf á Íslandi valda munnþurrki og hefur samstarf með fagfólki úr læknavísindunum reynst mjög gott til að byggja upp góða vöru og sterkt vörumerki, segir í tilkynningu.

Ákvörðun dómnefndar byggir meðal annars á eftirfarandi lýsingu: „Af mikilli stefnufestu, áræðni og hugviti hefur þessi frumkvöðull byggt upp fyrirtækið IceMedico ehf. Frumkvöðullinn hefur sýnt mikla forystuhæfileika og er vísindamaðurinn að baki uppfinningu, sem HAp+ byggir á og eigandi einkaleyfis í fjölda landa.

Frumkvöðullinn er sérfræðingur á sínu sviði og hefur mikla þekkingu og reynslu bæði hvað varðar vísindin og viðskiptin í kringum HAp+. Hann þekkir þarfir og væntingar viðskiptavinanna og er einnig virkur í fræða- og viðskiptasamfélaginu á þessu sviði.“

HAp+ munnsogsmolarnir.
HAp+ munnsogsmolarnir.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK