Eiginmaður Álfheiðar hjá Mossack Fonseca

Álfheiður Ingadóttir
Álfheiður Ingadóttir mbl.is/Rósa Braga

Lögfræðistofan Mossack Fonseca kom við sögu í stofnun fjölda íslenskra félaga sem tengdust Landsbankanum og Kaupþingi. Sum félögin voru stofnuð til hlutabréfakaupa í íslensku bönkunum og voru í eigu lykilstjórnenda bankanna.

Ný frétt um málið: Félagið stofnað fyrir Kaupþing

Meðal félaga sem Íslendingar skráðu hjá Mossack Fonseca fyrir efnahagshrunið er félagið Holt Investment Group Ltd. Samkvæmt skráningarvottorði var það skráð 5. apríl 2005 á Íslandi. Heimilisfangið var Akara-byggingin á Tortóla, heimilisfang Mossack Fonseca, og er fylgiskjal undirritað af fulltrúa Mossack Fonseca.

Samkvæmt ársreikningum félagsins Sýreyjar 2005-2014 hefur félagið verið í eigu Holt Investment Group Ltd. Sigurmar K. Albertsson, hæstaréttarlögmaður og eiginmaður Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi ráðherra, stofnaði félagið Sýrey og var forsvarsmaður þess þegar það var skráð á Tortóla. Prókúra Sigurmars hjá Sýreyju var afturkölluð með tilkynningu 8. mars 2006. Fram kemur í skjölum Holts Holding S.A. í fyrirtækjaskrá Lúxemborgar, að í árslok 2010 átti félagið 100% hlut í Holt Investment Group, sem skráð var á Bresku jómfrúaeyjum.

Höfuðstöðvar Mossack Fonseca lögmannsstofunnar í Panama city í Panama.
Höfuðstöðvar Mossack Fonseca lögmannsstofunnar í Panama city í Panama. AFP
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK