Már sótti vorfund AGS

Meðfylgjandi er mynd sem tekin var af seðlabankastjórum og fulltrúum …
Meðfylgjandi er mynd sem tekin var af seðlabankastjórum og fulltrúum í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðins á fundinum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri er fimmti frá vinstri í þriðju öfstustu röð. Mynd/Seðlabanki Íslands

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sótti vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldinn var í Washington í Bandaríkjunum dagana 15. til 17. apríl síðastliðinn. Fulltrúar Seðlabankans áttu auk þess fundi með stjórnendum og starfsfólki AGS, fulltrúum fjármálastofnana og matsfyrirtækja ásamt því að sækja ráðstefnur í tengslum við fundina.

Á fundi fjárhagsnefndar AGS kynnti framkvæmdastjóri AGS mat sitt á stöðu og horfum í heimsbúskapnum og helstu viðfangsefni AGS. 

Fulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í fjárhagsnefnd AGS var að þessu sinni fjármálaráðherra Noregs, Siv Jensen, og má nálgast yfirlýsingu hennar fyrir hönd kjördæmisins hér að neðan.

Í ályktun fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem er undir forystu Agustín Carstens, seðlabankastjóra Mexíkó, kemur m.a. fram að hagvaxtarhorfur eru taldar veikari en þær voru á síðasta fundi nefndarinnar.

Hagvöxtur heldur þó áfram hægum skrefum. Órói á fjármálamörkuðum hefur aukist og hægt hefur á vexti heimsviðskipta. Veik eftirspurn, lítil framleiðni og eftirhreytur fjármálakreppunnar halda aftur af endurbata í hagkerfum þróaðra ríkja og hægst hefur á vexti í nýmarkaðs- og þróunarríkjum.

Aukin landfræðipólitísk (e. geopolitical) spenna, flóttamannavandi og óvissa varðandi mögulega útgöngu Breta úr Evrópusambandinu gæti aukið áhættu í heimsbúskapnum í nánustu framtíð. Mikilvægt er að stefnumörkun landa sé markviss með áherslu á hagvaxtarhvetjandi ríkisfjármálastefnu og kerfisumbætur.

Ályktun fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er aðgengileg hér.

Meðfylgjandi er mynd sem tekin var af seðlabankastjórum og fulltrúum í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðins á fundinum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri er fimmti frá vinstri í þriðju öfstustu röð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK