VÍS heldur áfram endurkaupum á eigin hlutum

Stjórn VÍS hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram endurkaupum …
Stjórn VÍS hefur tekið þá ákvörðun að halda áfram endurkaupum á eigin hlutum félagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Vátryggingafélags Íslands (VÍS) tók í dag ákvörðun um að halda áfram endurkaupum á eigin hlutum félagsins. Þetta er fjórða endurkaupaáætlun félagsins sem kynnt er frá því að aðalfundur 2014 veitti slíka heimild.   

Á aðalfundi VÍS 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess efnis að kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum.

Í tilkynningu frá VÍS kemur fram að stjórn VÍS ákvað þann 30. apríl 2015 að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að 1.000.000.000 kr. að markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu 4,88% af útgefnu hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem aðalfundur hafði heimilað. Stjórn VÍS hefur því tekið ákvörðun um að halda endurkaupum á eigin hlutum áfram í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin nú kveður á um að verði keyptir, eru að nafnverði kr. 70.000.000 hlutir, en það jafngildir um 3,05% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 600.000.000. Heimildin gildir til 12. september 2016.

Arctica Finance mun sjá um endurkaupin og mun fyrirtækið taka allar viðskiptaákvarðanir sem varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 3.794.554 hlutir sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2016.

Í tilkynningunni frá VÍS kemur jafnframt fram að verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum sem kaupin fara fram, hvort sem hærra er.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK