Tekjur WOW á hvern farþega hækkuðu um rúmlega sjö prósent milli ára og námu 20.725 krónum samanborið við 19.318 krónur á sama tíma í fyrra.
Túristi bendir á þetta en tölurnar eru reiknaðar út frá nýjustu afkomutölum flugfélagsins.
Súli Mogensen, forstjóri WOW air, segir hærri fargjöld ekki ástæðuna heldur sé skýringuna að finna í lengri flugleiðum. Félagið hafi hvorki flogið til Bandaríkjanna né Kanaríeyja á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.
Nærtækt er að bera tekjur flugfélagsins á hvern farþega við tekjur norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian. Þar nema tekjur á hvern farþega tæpum 13 þúsund krónum og eru þar með um 37 prósent lægri en hjá WOW air. Megin skýringin á þessum muni er líklegast sú að Norwegian er mjög umsvifamikið í innanlandsflugi í Skandinavíu og stutt flug skila minni tekjum þó þau geti verið ábatasöm, líkt og Túristi bendir á.
Líkt og mbl greindi frá á dögunum varð töluverður viðsnúningur hjá WOW milli ára. Félagið hagnaðist um 400 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 280 milljóna króna tap á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.
Frétt mbl.is: 700 milljóna viðsnúningur hjá WOW
Á fyrsta ársfjórðungi flaug WOW air með 193 þúsund farþega sem er aukning um 119% á milli ára. Sætanýtingin á fyrsta ársfjórðungi er 88% og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 164% milli ára sem er mesta aukning frá stofnun félagsins.