Jötunn fær 300 milljóna fjármögnun

Mynd frá undirskrift fjármögnunarsamnings Jötunn véla : Sitjandi f.v. Finnbogi …
Mynd frá undirskrift fjármögnunarsamnings Jötunn véla : Sitjandi f.v. Finnbogi Magnússon og Sigurður K. Egilsson. Standandi f.v. Bessi Freyr Vésteinsson, Guðmundur Þ. Guðjónsson, Lárus Sigurðsson, Ragnar Birgisson og Þórir L. Þórarinsson. Ljósmynd/Jötunn

Jötunn vélar ehf. hafa samið við Fjárfestingafélag atvinnulífsins um 330 milljóna króna endurfjármögnun langtímaskulda félagsins. Með samkomulaginu er fjármögnun Jötunn véla tryggð næsta áratuginn. Fjárfestingafélag atvinnulífsins er fjármagnað af lífeyrissjóðum, í rekstrarumsjón ALM verðbréfa.

„Fjármögnunarsamningurinn jafngildir traustsyfirlýsingu við fyrirtækið og starfsemi þess sem við erum að sjálfsögðu afar ánægð með. Við höldum ótrauð áfram við að byggja upp og efla fyrirtækið,“ er haft eftir Finnboga Magnússyni, framkvæmdastjóra Jötunn véla, í tilkynningu.

Jötunn vélar sérhæfa sig í að selja vélar og búnað tengdan landbúnaði og verktökum. Fyrirtækið var stofnað árið 2004, með höfuðstöðvar á Selfossi auk verslana á Akureyri og Egilsstöðum. Stærstu eigendur Jötunn véla eru Finnbogi Magnússon, Vélaverkstæði Þóris ehf. og Sel ehf. Hofstaðaseli. Áætluð velta félagsins í ár er um 3 milljarðar króna, starfsmenn eru um 40.

Fjárfestingafélag atvinnulífsins var stofnað 2015 af ALM verðbréfum í samstarfi við lífeyrissjóði. Félagið fjárfestir í fyrirtækjaskuldabréfum sem uppfylla kröfur um lágmarkslánshæfiseinkunn samkvæmt lánshæfismati ALM. Fyrirtækjaráðgjöf ALM verðbréfa var umsjónaraðili fjármögnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK