Útgjöld ríkissjóðs innan fjárheimilda

Heildarútgjöld ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi 2016 voru innan fjárheimilda að því er fram kemur í ársfjórðungsuppgjöri sem sýnir stöðu fjármála á fyrsta ársfjórðungi hjá einstökum ríkisaðilum í A-hluta ríkissjóðs með hliðsjón af veittum fjárheimildum. Meirihluti fjárlagaliða er innan fjárheimilda á fyrstu þremur mánuðum ársins. 

Heildarútgjöldin námu 177 milljörðum króna á tímabilinu og voru innan fjárheimilda sem nemur 5,7 milljörðum króna án tillits til fjárheimildastöðu frá fyrra ári. Fjárheimildastaða fyrra árs kemur ekki fram í þessu uppgjöri þar sem ríkisreikningur ársins 2016 hefur ekki verið birtur. Í uppgjöri annars ársfjórðungs verður tekið tillit til fjárheimildastöðu fyrra árs.

Samtals eru 217 fjárlagaliðir með útgjöld innan fjárheimilda ársins, alls 9,8 milljarðar króna. Þar af eru 137 fjárlagaliðir með meira en 10% afgang af fjárheimildum, alls 7,5 milljörðum. Þeir 15 fjárlagaliðir sem hafa mestan afgang eru um 5,3 milljörðum króna innan heimilda.

Halli skýrist af fáum liðum

Þá eru 135 fjárlagaliðir með útgjöld umfram fjárheimildir ársins, samtals 4,1 milljarð króna, 76 fjárlagaliðir eru með halla undir 10 milljónum króna. Stærstur hluti umframútgjalda skýrist af fáum liðum, umframútgjöld 15 stærstu liðanna eru um 3,1 milljarður króna og þar af eru liðir sjúkratrygginga með um 1,1 milljarðs króna hallarekstur á tímabilinu. 

Ráðuneyti bera hvert um sig ábyrgð á því að afkoma fjárlagaliða sé í samræmi við fjárheimildir fjárlaga og að dreifing fjárheimilda innan ársins sé sem næst áætlaðri dreifingu raunútgjalda.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur áherslu á að ráðuneyti grípi til aðgerða þar sem áhætta er á að ríkisaðilar eða verkefni fari fram úr heimildum fjárlaga á árinu og yfirfari liði þar sem útgjöld hafa verið minni en áætlun og dreifing fjárheimilda gerði ráð fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK