Vantar þekkingu á kvikmyndafjármálum

Frá tökum á kvikmyndinni „Fyrir framan annað fólk“.
Frá tökum á kvikmyndinni „Fyrir framan annað fólk“. mbl.is/Árni Sæberg

Kvikmyndaframleiðsla á Íslandi velti yfir 70 milljörðum króna árin 2009 til 2015 og ársvelta hefur meira en tvöfaldast á því tímabili. Fjöldi starfa í kvikmyndaiðnaði hefur vaxið að sama skapi og eru nú 1.300 störf í greininni. Frá árinu 2010 hafa verið framleiddar um átta íslenskar kvikmyndir á ári og til marks um árangur kvikmyndaiðnaðarins fengu íslenskar kvikmyndir 109 alþjóðleg verðlaun á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) og Samtökum iðnaðarins (SI) vegna málþings sem haldið verður á fimmtudaginn kl. 16.00 – 17.30 í Gamla bíói þar sem farið verður yfir stöðu kvikmyndagreinarinnar á Íslandi og fjármálaþjónustu fyrir kvikmyndaframleiðslu.

Á málþinginu verður farið yfir jákvæða þróun iðnaðarins hér á landi og fjallað um fjármála- og tryggingaþjónustu í kvikmyndagreininni með áherslu á alþjóðlegar lausnir fyrir íslenskan markað.

Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK, segir málþingið vera sérstaklega hugsað fyrir sérfræðinga í fjármálageiranum, fjárfesta, framleiðendur kvikmyndaefnis og annað áhugafólk um viðskiptahluta kvikmyndagerðar.

Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK.
Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vantar þekkingu á fjármálahlutanum

„Kvikmyndaiðnaðurinn er orðinn hörku menningariðnaður hér á landi. En þó kvikmyndagreinin sé yfir 100 ára gömul vantar dýpri þekkingu á fjármálahlutanum í nútímakvikmyndaframleiðslu og öllum þeim möguleikum sem í boði eru fyrir fjárfesta,“ er haft eftir Hilmari í tilkynningu.

„Það lítur út fyrir að það megi bæta fjármálakerfi iðngreinarinnar í bankakerfinu á Íslandi. Markmið málþingsins er að kynna fyrir íslenskum framleiðendum, fjárfestum, sjóðum og bönkum leiðir sem alþjóðleg kvikmyndaframleiðsla notar til að minnka áhættu, tryggja útkomu mynda, tryggingar, fjárstreymisfjármögnun og fleira sem skiptir máli við að fjármagna kvikmyndaframleiðslu.“ 

Bílar sem voru notaðir í kvikmyndina Fast 8 sem tekin …
Bílar sem voru notaðir í kvikmyndina Fast 8 sem tekin var upp við Mývatn. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir erlendir sérfræðingar flytja erindi á málþinginu:

Per Naumann er forstjóri og stýrir skrifstofum European Film Bonds í Kaupmannahöfn, London, Stokkhólmi, Madríd og Melbourne sem hafa séð um verklokatryggingar við framleiðslu kvikmynda- og sjónvarpsefnis í yfir 40 löndum. European Film Bonds einbeita sér markvisst að þróun markaða, framboði af gagnlegum tryggingum og endurtryggingum, framboði á samkeppnishæfum verklokatryggingum og tengdri ráðgjafarþjónustu.

Mads Peter Ole Olsen var hjá ABN AMRO Bank og Danske Bank þar sem hann vann við verkefnafjármögnun, fjárfestingabankastarfsemi og fyrirtækjasamruna, bæði í Kaupmannahöfn og New York. Mads vann hjá Banque Internationale a Luxembourg og síðar í 10 ár hjá Scanbox Entertainment. Mads er í dag yfir Norðurlandadeild franska bankans Natixis Coficiné og stýrir kvikmyndaframleiðslulánum til kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðarins. Natixis Coficiné er stærsti lánveitandinn í evrópska kvikmyndaiðnaðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK